Pálmi Gests forviða: Hvernig hefur fólk almennt efni á því að skipta við íslenskt heilbrigðiskerfi?

Einn ástsælasti leikari landsins, Pálmi Gestsson fór í aðgerð á öxl í dag. Tvær sinar höfðu slitnað og voru þær saumaðar saman.

Hann greinir frá raunum sínum á Facebook og segir.

„Að öllu jöfnu hefði þetta átt að kosta mig í kringum 40.000, en þar sem ekki hefur verið samið við sérfræðilækna árum saman þurfti ég að greiða 160.000! Hvernig hefur fólk almennt efni á því að skipta við íslenskt heilbrigðiskerfi?“