Pálmi biðst afsökunar: ómaklegt og yfir strikið - „þinn besti djókur“

„Fyrirgefið mér orðbragðið, ég er ekki vanur að taka svona til orða um fólk en nú get ég ekki lengur haldið í mér enda held ég sé komin tími til að grípa til orðbragðs sem hæfir þeim og þeir skilja: Miðflokksmenn eru hálfvitar (með kannski einni undantekningu). Og kjósendur þeirra (Miðflokksins) hálfu verri, illa innrætt og heimskt fólk svo það sé sagt. Þetta er þyngra en tárum taki en nauðsynlegt að segja það. Þeir eru stórhættulegir þjóðinni.“

Þetta sagði leikarinn Pálmi Gestsson nýverið á færslu á Facebook. Hringbraut gerði sér mat úr færslunni og vakti fréttin mikla athygli. Var Pálmi ýmist hrósað eða gagnrýndur fyrir skrifin. Pálmi sagði:

„Mér finnst leitt að þurfa nota þessi orð og þau eru sterk, en ég gat bara ekki orða bundist. Stundum þarf að fara niður á plan þeirra sem umræðir því þeir virðast ekki skilja annað.“

Pálmi telur nú að hann hafi gengið of langt og hefur beðið kjósendur Miðflokksins afsökunar á orðum sínum.

„Ég vil biðja kjósendur Miðflokksins afsökunar á orðum sem ég lét falla um þá hér á þessum vettvangi nýlega. Þau voru ómakleg og yfir strikið.“

Þorsteinn Sæmundsson þingmaður Miðflokksins sem hafði áður gagnrýnt Pálmi hrósar leikaranum. „Þú ert meiri maður eftir br.minn!“ Össur Skarphéðinsson segir: „Prófessor í heimspeki hefur nýlega ritað grein í Kjarnann um að framþróun heimsins byggist í reynd á því að fara yfir þetta fræga strik. Ættir að draga afsökunarbeiðnina til baka í því akademíska ljósi.“

Háðfuglinn og rithöfundurinn Halldór Högurður sér þó afsökun Pálma á annan hátt. Hann segir einfaldlega: „Þetta er þinn besti djókur“