Páll vill vita hver það var sem flaggaði regnbogafánunum: „skoðun hvers er verið að lýsa með þessum fána?“

„Ég vil bara vita hver flaggaði.“ Þetta segir Páll Magnússon, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í samtali við Fréttablaðið. Rétt eins og þeir Jón Magnússon lögmaður, Gústaf Níelsson, Margrét Friðriksdóttir, Jón Valur Jensson, Gunnar í Krossinum og Ragnar Guðmundsson, gagnrýnir Páll að fyrirtæki skyldi flagga hinsegin fána til að mótmæla komu Mike Pence. Hér má sjá fyrri frétt Hringbrautar um málið.

Páll segir: „Var það stjórn Advania, voru það eigendur, hluthafar, starfsfólk, forstjóri, eða skoðun hvers er verið að lýsa með þessum fána?“

Þá segir Páll einnig að hann vilji að gefin verði út tilkynning um hver hafi tekið þessa ávkörðun. Páll segir: „Advania er bara eitthvað andlitslaust fyrirtæki í bænum.“