Páll Magnússon fyrrverandi útvarpsstjóri telur einsýnt í grein sem hann skrifar í Fréttablaðið í dag að Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra þurfi að segja af sér vegna óeðlilegra tengsla sinna við Orku Energy.
Í grein Páls segir að í sjálfu sér sé ekkert athugavert við það þó stjórnmálamenn þiggi laun frá þriðja aðila og eins sé ekkert athugavert við það þó þeir greiði götu fyrir viðskiptum hans á erlendum vettvangi. Hvorugt geti talist spilling í sjálfu sér. Hann segir hins vegar að pólitíska spillingin felist í því að sá sem naut fyrirgreiðslu ráðherrans sé sá hinn sami og leysti úr persónulegum fjárhagsvanda hans. „Sú framganga gæti raunar tilheyrt dæmasafni í handbók um pólitískt siðleysi,” skrifar Páll.
„Ráðherra getur ekki notað stöðu sína sem slíkur til að greiða fyrir viðskiptahagsmunum einstaklings eða fyrirtækis sem skömmu áður hefur rétt honum fjárhagslega, persónulega, hjálparhönd. Þetta hlýtur að vera öllum ljóst, jafnvel á Íslandi. Á Vesturlöndum víkur slíkur ráðherra,” skrifar hann ennfremur.
Páll Magnússon lét af störfum útvarpsstjóra nokkru eftir að Illugi Gunnarson tók við embætti menntamálaráðherra sem fer með málefni Ríkisútvarspins. Páll er nú um stundir þáttastjórnandi á Hringbraut sem gefur út samnefndan vef.