Páll: vigdís var með ókurteisi

Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, segist hafa mætt mikilli ókurteisi af hálfu forystu fjárlaganefndar Alþingis. Hann segir mikilvægt að þessi mál séu rædd á faglegum grundvelli – ekki persónulegum. 

\"Þetta mál snýst ekki um ánægju. Þetta er ekki mál á þeim persónulega level,\" sagði á Bylgjunni í gær: \"Þetta snýst ekki um sálarlíf eða líðan Vigdísar Hauksdóttur, eða mína eða nokkurs annars. Þetta snýst um miklu stærri hlut, sem er hagur þjóðarsjúkrahússins sem þjóðin skýrt segir að hún vilji fá í forgang,“ sagði Páll þar ennfremur.

Viðtalið við Pál í Bítinu var tekið eftir að Páll tjáði sig eftirminnilega um fund sinn með fjárlaganefnd í í kvöldfréttum Stöðvar 2 á sunnudagskvöld, en þar kvaðst hann vera sleginn yfir þeirri framkomu sem hann hafi mætt - Fjárlaaganefnd Alþingis nánast saki stjórnendur spítalans um stöðugt væl. Vigdís Hauksdóttir, formaður nefndarinnar, líkti orðum hans við andlegt ofbeldi.

Í Bítinu var hann spurður út í þessa framkomu. Hann sagðist þó ekki sjá ástæðu til að fara ítarlea út í þau mál: \"Þetta er framkoma sem ég myndi ekki vilja sína. Ég vil taka þetta upp af þessu persónulega leveli, því þetta snýst um prinsipp. Þessi umræða á að snúast um þarfir. Við komum fram með gögn og tölur og þá vil ég bara fá eitthvað á móti ef fólk þykist hafa það sem þarf til að afsanna þá fullyrðingu okkar, sem er rétt, að það vanti enn töluvert upp á.“ 

Var þetta ókurteisi? \"Já, ég hugsa að amma mín hefði kallað það það,“ svaraði Páll í útvarpsviðtalinu.

Hann sagði að mikilvægt væri að hugsa til framtíðar. Ekki sé hægt að bæta stöðu Landspítalans til fulls á einu eða tveimur árum. Óásættanlegt sé að stjórnendur spítalans þurfi nánast að betla svo þeim verði kleift að reka grunnheilbrigðisþjónustu. Aðspurður hvað verði, fái spítalinn ekki það fjármagn sem hann þurfi á að halda, segir Páll að þá þurfi ákveðin verkefni að mæta afgangi. .