Páll varð brjálaður: sjáðu „fréttina“ sem fór aldrei í loftið – „hrokinn og dónaskapurinn!“

Páll Magnússon, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, og fyrrverandi fréttastjóri Stöðvar 2 og útvarpsstjóri RÚV, birtir bráðskemmtilegt myndskeið á Facebook-síðu sinni. Er myndskeiðið frá því að hann var að flytja fréttir á Stöð 2. Myndskeiðið fór hins vegar aldrei í loftið og stóð aldrei til að svo færi. Páll segir um myndskeiðið:

„Þegar gamalt fréttaskot með mér birtist í sjónvarpsþætti í gærkvöldi rifjaðist þetta upp fyrir einhverjum (sömu gleraugun!). Þetta fór þó sem betur fer aldrei  „í loftið“ - heldur hafði kjarkmiklum tæknimönnum verið falið að gera mig brjálaðan með „bilunum“ nokkrum mínútum fyrir beina útsendingu - og síðan var afraksturinn notaður á árshátíð Stöðvar 2. Mér finnst ég samt halda „kúlinu\“ nokkuð vel - eða kannski ekki“.

Hafa fjölmargir tjáð sig á Facebook-síðu Páls. Sindri Sindrason