Páll um fjárlögin: áfram aðhald

Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans fagnar ákvörðun stjórnvalda á lokametrum fjárlagaumræðunnar að hækka framlög til spítalans um á annan milljarð króna. Hann segir niðurstöðuna vera ánægjulega þótt áfram þurfi að horfa í hverja krónu.

Spítalinn fær tíma­bundna 1.000 millj­óna króna fjár­veit­ingu til að bæta úr frá­flæðis­vanda Land­spít­al­ans, en hugs­un­in er sú að fjár­mun­un­um verði varið í ýmis úrræði til að létta á starf­semi spít­al­ans. Þá var einnig ákveðið að veita 250 millj­ón­um króna til að auka viðhalds­fram­kvæmd­ir á hús­næði spít­al­ans. Að sögn Guðlaugs Þórs Þórðar­son­ar, fyrsta vara­for­manns fjár­laga­nefnd­ar, er fram­lagið m.a. ætlað til fram­kvæmda á end­ur­hæf­ing­ar­deild­inni á Grens­ási.

\"Þetta eru 250 millj­ón­ir sem fara í viðhald en síðan fer millj­arður í það að taka sér­stak­lega á þess­um frá­flæðis­vanda á Land­spít­al­an­um þannig að hann geti sinnt bet­ur hlut­verki sínu sem bráðasjúkra­hús,“ seg­ir Guðlaug­ur um fjár­veit­ing­arn­ar í samtali við Morgunblaðið í dag.

Hann seg­ir marg­ar leiðir til að taka á vand­an­um og að fjár­mun­irn­ir séu ætlaðir í þau úrræði: \"Það eru þarna hlut­ir eins og að nýta öll þau hjúkr­un­ar­rými sem eru til staðar, skamm­tíma­úr­ræði og öfl­ugri heimaþjón­usta, þannig að fólk geti verið leng­ur heima hjá sér.“