Heimildarmyndin Lífríki í landi Reykjavíkur verður sýnd á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í kvöld klukkan 21:00 en þar er á ferðinni enn einn demanturinn úr litríku heimildarmyndasafni Páls Steingrímssonar.
Hringbraut hefur fengið sýningarrétt á öllu heimildarefni Páls sem spannar vítt svið og langan tíma. Myndir hans hafa vakið mikla athygli og hrifningu og njóta mikils áhorfs á sjónvarpsstöðinni.
Mynd kvöldsins sýnir áhorfendum vel hversu fjölskrúðugt lífríkið er allt í kringum Reykjavík og jafnvel inni borginni sjálfri, en mest ber þar vitaskuld á fuglalífinu sem er líklega meira og margbrotnara en þekkist í flestum höfuðborgum í heiminum.
Lífríki í landi Reykjavíkur er á dagskrá Hringbrautar klukkan 21:00 í kvöld.