Páll segir hamast á afsökun Samherja með útúrsnúningum: „Eins og sælgæti hafi verið tekið frá barni“

Páll Magnússon, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi útvarpsstjóri, gagnrýnir stjórnmálamenn sem taka afsökunarbeiðni Samherja ekki gilda. Margir hafa sett spurningamerki við afsökunarbeiðni Samherja, bæði stjórnmálamenn og fjölmiðlamenn. Heiðar Örn Sigurfinnsson, varafréttastjóri RÚV, spurði hvern væri verið að biðja afsökunar, hver væri að því og hvers vegna. Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, hefur ekki viljað veita viðtöl vegna málsins.

Helgi Seljan, fréttamaður RÚV, sem skæruliðar Samherja hafa beint spjótum sínum að, sagði í kvöldfréttum RÚV á sunnudag að hann vonaði að fyrirtækið myndi nú svara spurningum.

Páll segir um það á Facebook:

„Fyrst Helgi Seljan telur afsökunarbeiðni Samherja gilda og tekur henni í góðri trú - af hverju hamast þá sumir stjórnmálamenn gegn henni með útúrsnúningum og orðhengilshætti? Finnst þeim afsökunarbeiðnin kannski minnka líkurnar á að þeir geti lýðskrumað sig í gegnum næstu kosningar?“

Segir Páll að hann sé að bera saman viðbrögð Helga Seljan og sumra stjórnmálamanna.

„En samanburðurinn finnst mér áhugaverður og svekkelsi sumra stjórnmálamanna grátbroslegt. Eins og sælgæti hafi verið tekið frá barni,“ segir hann.

Nokkrar umræður sköpuðust um þetta á síðu Páls. Þar á meðal Ómar nokkur sem spyrti Samherja saman við Sjálfstæðisflokkinn. Gísli Kr. Björnsson, áhrifamaður í Sjálfstæðisflokknum, svaraði:

„Ég sé bara ekki að þetta stríð RÚV og Samherja hafi neitt með Sjálfstæðisflokkinn að gera,“ segir hann. „Þetta er bara einkafyrirtæki og svo ríkisfjölmiðill, thats it.“