Kennarinn og bloggarinn Páll Vilhjálmsson leitar á náð lesanda sinna í færslu sem birtist í morgun þar sem hann óskar eftir fjárframlögum til að geta áfrýjað dómi Hæstaréttar til Landsréttar eftir að hann var dæmndur til að greiða blaðamönnunum Þórði Snæ Júlíussyni og Arnari Þór Ingólfssyni hjá Heimildinni bætur fyrir ærumeiðandi ummæli á bloggi sínu.
Páli var gert að greiða hvorum kæranda um sig 300 þúsund krónur í miskabætur og 750 þúsund krónur í málskostnað vegna málsins.
Í færslunni segist Páll hafa verið dæmdur til að greiða blaðamönnum RSK-miðla vegna bloggskrifa um aðild þeirra að byrlun Páls Steingrímssonar skipstjóra og stuldi á síma.
Í framhaldi af því slær hann því fram að tjáningafrelsið sé sem sagt fyrir fá eina útvalda. Þeir sem séu mótfallnir frásögn fjölmiðla hljóti verra af í formi málssóknar og lofar því að áfrýjað.
Hann hafi fengið spurningar hvernig fólk geti aðstoðað hann í þessu máli, þar sem hann sé jú aðeins launamaður gegn ríkisfjölmiðlum, og því sé hann að auglýsa styrktarreikning.