Páll óskar var í áfalli eftir dramatíska heimsókn í vesturbæjarlaug: breytti lífi hans – „ég ætla ekki að enda svona“

Einn okkar allra fremsti tónlistarmaður, Páll Óskar Hjálmtýsson, segir frá reynslu sinni af sundlaugarferðum á níunda áratugnum í þættinum Svona fólk. Á RÚV er birt brot úr þættinum og þar sem að sem unglingur hafi Páll rekist reglulega á eldri menn í gufubaðinu í Vesturbæjarlaug. Þangað voru þeir komnir í leit að kynferðislegri fullnægingu. Páll ákvað eftir eina dramatíska heimsókn, þá 16 ára gamall, að verða aldrei eins og þeir.

Páll Óskar segir: „Það var eitt öðru fremur sem að hvatti mig til að gera eitthvað við mína kynhvöt og ákveða hvers konar lífsstíl ég vildi lifa. Það var ákaflega dramatískt heimsókn mín í Vesturbæjarlaugina. Í gufunni í Vesturbæjarlauginni, er ég 16 ára, verð ég vitni að því, að það er ákaflega mikið af eldri mönnum sem venja komur sínar þangað í örvæntingarfullri leit að kynferðislegri fullnægingu, vegna þess að þetta er annað hvort eitthvað sem þeir hafa neitað sér um eða ekki upplifað af öðrum orsökum, alla sín hunds og kattartíð.“

Hafði þessi heimsókn mikil áhrif á framtíð Páls Óskars.

Það var þá sem ég sagði, nei. ég ætla ekki að gera sjálfum mér þann grikk að enda svona þegar ég verð sextugur.

Þá bætir Páll Óskar við: „Ég var sextán ára, samkynhneigður, hamingjusamur og kynferðislega aktífur. Ég veit hve mikilvægt það er að vera unglingur og hve mikilvæg þessi ár eru. Þessi ár geta breyst í sápuóperu ef maður passar sig ekki.“