Páll Óskar var gestur í Lestinni á Rás 1 í gær, þar sem hann segir m.a. gyðinga hafa saumað sig inn í Evrópu á lúmskan hátt og að gyðingar hafi ekki lært neitt af helförinni. Ummæli Páls Óskars hafa vakið hörð viðbrögð, svo hörð að hann er víða sakaður um gyðingaandúð. DV.is og Vísir.is greina frá.
Í Lestinni ræddi Páll Óskar þátttöku Íslands í Eurovision í Ísrael og var Skarphéðinn Guðmundsson, dagskrárstjóri RÚV, einnig gestur í útvarpsþættinum. Páll Óskar er andvígur þátttöku Íslands í keppninni og ástæðuna segir hann einfaldlega vera gróf mannréttindabrot Ísraels á grönnum sínum í Palestínu. Hann segir varla hægt að tala um átök á svæðinu lengur, ástandið væri meira í líkingu við þjóðarmorð. Auk þess sé ómögulegt að kalla viðburðinn ópólitískan, enda alþjóðlegir stórviðburðir gjarna skrautfjaðrir einræðisherra og harðstjóra.
Páll Óskar segir ekki bera mikið á mótmælum í Evrópu vegna keppninnar. Þar sé umræðan lítil og yrði ekki vel tekið í Evrópu. Um þetta viðhafði Páll Óskar eftirfarandi umdeildu ummæli:
„Ástæðan fyrir því að restin af Evrópu þegir þunnu hljóði er sú að gyðingar eru búnir að sauma sig inn í Evrópu á mjög lúmskan hátt á mjög löngum tíma. Það er alls ekki hip og kúl að vera „pro Palestína“ í Bretlandi. Tragedían er sú að gyðingar lærðu ekki neitt af Helförinni. Í staðinn umbreyttust þeir í nákvæma afsteypu af sínum ógeðslegasta óvini,“ segir Páll Óskar.
Í frétt DV kemur fram að fjöldi fólks gagnrýni þessi ummæli Páls Óskars, m.a. á Twitter og Íslandsþræði Reddit. Margir segja hann sýna af sér gyðingaandúð og einn notandi á Reddit segir hann gera þau mistök að leggja gyðinga að jöfnu við ríkisstjórn Ísraels.
Þegar Fréttablaðið fór þess á leit við Pál Óskar að ræða þessi ummæli sagðist hann ekki vilja veita viðtal um „eitthvað sem sé sagt um sig í kommentakerfi,“ en benti blaðamanni á að skoða staðreyndir um málið hjá Sameinuðu þjóðunum, Unicef og Amnesty International.