Páll Óskar hefur dregið til baka og beðist afsökunar á nokkrum ummælum sem hann viðhafði um gyðinga í Lestinni á Rás 1 á mánudag. Fréttablaðið greinir frá.
Í yfirlýsingu í gær segir Páll Óskar um ummæli sín: „Ég viðurkenni fúslega að ég gekk allt of langt í orðum mínum, ég blandaði ríkisstjórn Ísrael, Ísraelsher og gyðingum saman í einn graut. Ég fór með áfellisdóma og alhæfingar um gyðinga. Orðrétt sagði ég í útvarpsþættinum: „Ástæðan fyrir því að restin af Evrópu þegir þunnu hljóði er sú að gyðingar eru búnir að sauma sig inn í Evrópu á mjög lúmskan hátt á mjög löngum tíma. Það er alls ekki hip og kúl að vera „pro-Palestína“ í Bretlandi.“ Og undir lok viðtalsins: „Tragedían er sú að gyðingar lærðu ekki neitt af Helförinni. Í staðinn umbreyttust þeir í nákvæma afsteypu af sínum ógeðslegasta óvini.””
„Ég tek fulla ábyrgð á þessum ummælum, tek þessi orð mín um gyðinga til baka, þau eru röng og særandi. Ég sýni ábyrgð mína í verki héðan í frá, og mun aldrei framar hallmæla gyðingum, hvar sem þeir búa í heiminum,“ segir Páll Óskar.
Hann segir restina af ummælum sínum standa: „Heimurinn hefur verið vitni að áratuga ofbeldi gegn Palestínumönnum og mörgum þótt hrikalegt að fólkið sem Helförin beindist gegn skuli ganga fram með þeim hætti sem Ísraelsher gerir. Eins og gefur að skilja hafa þessar alhæfingar mínar, að blanda saman gyðingum við stjórnarstefnu Zíonista, vakið hörð viðbrögð sem ég tek fúslega ábyrgð á.“
„Ríkisstjórn Ísrael er hópur stríðsglæpamanna sem halda heilli þjóð í gíslingu og reyna að þurrka hana út hægt og rólega, oft með aðferðafræði sem tekin er beint úr helförinni. Gyðingar eru bara fólk, eins mismunandi og þeir eru margir, búsettir um allan heim og margir hverjir harðir andstæðingar Ísraelsríkis,“ segir Páll Óskar að lokum.