Páll ósáttur við ákvörðun bjarna: „ég hef lýst þessari skoðun áður“

Páll Magnússon er þeirra skoðunar að fyrsti þingmaður Suðurkjördæmis fyrir Sjálfstæðisflokkinn ætti að sitja í ríkisstjórn. Það vill einmitt þannig til að það er einmitt Páll sem situr í því sæti en í gær var gengið fram hjá Páli þegar Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir var skipuð dómsmálaráðherra. Talið var að valið stæði á milli Brynjars Níelssonar, Birgis Ármannssonar og Áslaugar en þau eru öll lögfræðimenntuð. Páll hefur sóst eftir ráðherraembætti frá árinu 2016 en Bjarni hefur ítrekað gengið framhjá honum. Sama á við um Brynjar Níelsson. Páll kveðst þó hafa stutt Áslaugu á þingflokksfundinum þó hann væri ekki sammála. Í samtali við Eyjuna segir Páll:

„Ég studdi þessa niðurstöðu í gær eins og allir aðrir í þingflokknum. Ég hef áður lýst skoðunum mínum á því sem snýr að kjördæmi mínu, Suðurkjördæmi, sem er annað höfuðvígi Sjálfstæðisflokksins. Og ég er eftir sem áður þeirrar skoðunar að þegar Sjálfstæðisflokkurinn er í ríkisstjórn, finnst mér að oddviti flokksins í Suðurkjördæmi ætti að sitja í ríkisstjórn. Ég hef lýst þessari skoðun áður og hef litlu við hana að bæta og hún er jafn gild í dag og hún var áður.“

Þá er Páll spurður hvort hann ætli að bjóða sig fram til Alþingis aftur, í ljósi þess að hann virðist ekki hafa traust Bjarna til að vera úthlutað ráðherraembætti.

„Ég hef enga ákvörðun tekið um það. Ráðherra eða ekki ráðherra, það ræður ekki miklu um hvaða ákvarðanir ég tek um framhald mitt í pólitík. Ég veit heldur ekki hvort að formaður Sjálfstæðisflokksins sé með einhverja framtíðar-goggunarröð í ráðherraembættin, það hlýtur þá að fara eftir hvaða embætti það kynnu að vera.“

Þá er Páll spurður um grein Jóns Gunnarssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, sem birtist í Morgunblaðinu í dag. Þar gagnrýndi Jón framgöngu Guðmundar Inga Guðbrandssonar umhverfisráðherra og talaði um að slíta jafnvel stjórnarsamstarfinu. Páll svaraði:

„Jón verður að standa fyrir sínum skoðunum sjálfur og því sem hann skrifar. Ég er hins vegar sammála því að það er ýmislegt gagnrýnisvert í framgöngu umhverfisráðherra til dæmis er varðar friðlýsingar þar sem mér þykir fullhart fram gengið og eflaust hafa menn ekki gert ráð fyrir því að einn ráðherra gæti gengið fram með þessum hætti án atbeina Alþingis. En að öðru leyti talar Jón fyrir sig sjálfan.“