Páll og ólöf tapa mest

Staða Sjálfstæðisflokksins, eftir kjördæmum í skoðanakönnuninni sem Félagsvísindastofnun gerði fyrir Morgunblaðið, er nokkuð misjöfn eftir kjördæmum. Flokkurinn bætir verulega við sig í Norðvesturkjördæmi, þar sem Haraldur Benediktsson er í fyrsta sæti. Í kosningunum 2013 fékk Sjálfstæðisflokkurinn tæp 25 prósent í kjördæminu en fengi nú, samkvæmt könnuninni, 34 prósent.

Sjálfstæðisflokkurinn missir nokkuð fylgi í Reykjavík suður, þar sem varaformaðurinn Ólöf Nordal er ó foryst, fékk 26,8 prósent 2013 en mælist nú með 22 prósent.

Kjósendur Sjálfstæðisflokks í Suðurkjördæmi virðast sakna Ragnheiðar Elínar Árnadóttur. Undir hennar forystu fékk flokkurinn 28,3 prósent 2013. Undir forystu Páls Magnússonar nú mælist fylgið nokkuð minna, eða 24 prósent.

Litlar breytingar mælast í öðrum kjördæmum.