Obbinn af þingmönnum hefur gengið svipaða leið og hópurinn er ekki sérstaklega fjölbreyttur, að mati Páls Magnússonar, fyrrverandi útvarpsstjóra, en hann kveðst þeirrar skoðunar að þingheimur samsvari samfélaginu verr en áður var og að mikið sé af lélegum þingmönnum á þingi.
Þetta kom fram í máli hans í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni um helgina en þar mætti Páll ásamt Ingva Hrafni Jónssyni, en báðir eru þeir gamlir þingfréttaritarar og voru fengnir í þáttinn til að meta störf þingsinss sem nú er farið í jólafrí.
Að því er fram kemur í viðtalinu sem nálgast má á visir.is vandaði fyrrverandi útvarpsstjóri þingmönnum ekki kveðjunnar og sagði mikið af lélegum þingmönnum á þingi um þessar mundir. Hann vildi ekki alhæfa og margir góðir þingmenn væru þar einnig en svo virtist sem að stjórnmálaflokkunum hefði ekki tekist að laða að sér hæfileikaríkt fólk.
Hópur þingmanna væri einsleitur. Þeir Ingvi Hrafn voru sammála um að áður hafi þingmenn haft fjölbreyttari bakgrunn. Þá hafi verið alls konar fólk á þingi; sjómenn, bændur og verkalýðsleiðtogar. Nú séu þingmenn hins vegar með óskaplega viðlíka reynslu.
\"Obbinn af þingmönnum hefur gengið mjög svipaða leið,“ sagði Páll sem telur þingheim samsvara samfélaginu verr en áður.