Páll matt: stjórnin skilur ekki vandann

Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans segir að enn vanti töluvert upp á að skilningur sé hjá stjórnvöldum um fjárþörf Landspítalans fyrir næsta ári. Hann segir að þó samþykkt hafi verið að endurskoða fjármögnun spítalans til framtíðar breyti það engu fyrir næsta ár.
 
Þetta kom fram í samtali við hann í morgunþætti Rásar 2 í morgun, en þar lýsti Páll því hvernig álag á spítalann hafi aukist ár frá ári án þess að því hafi verið mætt með samsvarandi fjárveitingum.
 

Í viðtalinu bendir Páll á að fjárveitingar Sjúkratrygginga hækki sjálfkrafa ár frá ári vegna breyttrar aldurssamsetningar en svo væri ekki með Landspítala: \"Það er það að álag eykst á spítalanum ár frá ári, sem er eðlilegt og þarf ekki að koma neinum á óvart, og tengist í rauninni breyttri aldurssamsetningu þjóðarinnar. Það er það sem við erum að tala um að við þurfum að fá inn í módelið í rauninni sjálfkrafa hækkun þegar aldurssamsetning þjóðarinnar eykst. Við vitum að frá 2010 hefur álagið aukist að meðaltali um 1,7 prósent á ári. Þannig að allt það fé sem við fáum nýtt inn án þess að það sé gert ráð fyrir þessu er í rauninni eins og sparnaðarkrafa,“ bendir forstjórinn á.

Páll sagði það vera staðreynd að fjárframlög til spítalans hefðu verið dregin saman áratugum saman, þar til síðustu tvö ár. „Það er engin frekja að óska eftir fé til að sinna sómasamlega veiku fólki. Það er bara hluti af því sem fylgir því að reka hér almennilegt nútíma þjóðfélag.“

Í frétt RÚV um viðtalið er bent á að stjórnarliðar hafi sagt að aldrei hafi verið lagt fram meira fé til Landspítala heldur en nú. Þetta kannast Páll ekki við og segir að tölur spítalans styðji ekki þessar fullyrðingar. 

Það vakti mikla athygli þegar Páll skrifaði pistil á vef Landspítala þar sem hann gagnrýndi framgöngu Vigdísar Hauksdóttur, formanns fjárlaganefndar, og Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, varaformanns nefndarinnar, þegar fulltrúar spítalans mættu á fund nefndarinnar. Vigdís lýsti gagnrýninni sem andlegu ofbeldi. Aðspurður um þessi orð Vigdísar í Morgunútvarpinu svaraði Páll: \"Þetta er ekki svaravert.“