\"Þú ert síðasti maðurinn sem ég hleypi út úr þessu fangelsi,\" hefur Páll Winkel á orði við sjónvarpsmanninn Sigmund Erni undir lok sögulegs innslags í Lífinu á Hringbraut í kvöld þar sem Hegningarhúsið er skoðað hátt og lágt í tilefni af lokun þess.
Þar með er 142 ára sögu elsta fangelsins landsmanna lokið - og þó fyrr hefði verið, en vistarverurnar á Skólavörðustíg 9 eru mönnum ekki lengur bjóðandi, slíkt eru þrengslin og aðbúnaðurinn - og má þar nefna að líkamsræktarsalurinn er sennilega sá allra þrengsti á landinu, ef ekki heiminum.
En það er margt að skoða í þessu gamla húsi sem reist var \"vel\" utan við miðbæinn á sinni tíð, allt frá þvottaaðstöðu fanganna í kjallara þar sem unnið hefur verið við ómanneskjulegar aðstæður á fyrri tíð og upp eftir fangelsisganginum að gamla dómssalnum þar sem sjálfan sakamannabekkinn er að finna.
Á myndinni sem fylgir þessari frétt ræðir Sigmundur Erni við Pál í gegnum matarlúuna á milli fangagangsins og eldhúss gamla tukthússins.
Saga Hegningarhússins er á skjánum klukkan 20:00 í kvöld.