„Það er augljóst í okkar huga að það er þetta sem skiptir mestu máli. Hver sé upplifun almennings, neytandans. Við höfum talað fyrir því lengi að stjórnvöld þurfi að koma að því með einhverjum hætti að styrkja þessa rödd. Við finnum þetta ójafnvægi svo í okkar starfi.“
Þetta sagði Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, í viðtali við Þórð Snæ Júlíusson, ritstjóra Kjarnans, í frétta- og umræðuþættinum 21 á Hringbraut á miðvikudagskvöld. Kjarninn greinir frá.
Hægt er að sjá brot úr þættinum hér:
Páll sagði að ójafnvægið birtist í því að á Íslandi séu mjög sterk hagsmunasamtök fyrirtækjamegin á meðan neytendur eigi í mjög miklum erfiðleikum með að taka þátt í hagsmunabaráttunni fyrir sína hönd.
Það sé afleiðing slíkrar baráttu í okkar litla samfélagi sem verði oft persónuleg. „Annars staðar á Norðurlöndunum sjáum við stutt mun myndarlegar við neytendasamtök heldur en hér er gert.“
Í þættinum ræddi Páll Gunnar einnig nýbirta könnun sem ráðgjafanefnd um opinberar eftirlitsreglur lét Maskínu gera til að kanna eftirlitsmenninguna á Íslandi. Í niðurstöðunum kom fram að af mati á 16 mismunandi eftirlitsstofnunum kom Samkeppniseftirlitið hvað verst út. Hann gagnrýnir að einungis fyrirtæki, ekki almenningur, séu spurð um árangur eftirlits.
„Ef maður horfir á þessar stofnanir sem spurt er um í þessari könnun þá eiga þær eiginlega bara eitt sameiginlegt, og það er að þær eru að vinna að einhvers konar almannahagsmunum. Það er einhvern veginn í þessari umræðu að endanotandinn er aldrei spurður. Það er að segja neytandinn, launþeginn, viðskiptavinurinn eða hvaða nafni sem við kjósum að nefna almenning,“ sagði Páll Gunnar.
Hann sagði að á kynningarfundi á niðurstöðu könnunarinnar hafi ýmsum aðilum verið boðið að leggja orð í belg en að forsvarsmenn neytenda hafi ekki verið þar á meðal.
Viðtalið við Pál Gunnar í heild sinni er að finna hér: