Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins var gestur lögmannsins Jónasar Arnar Jónasonar í þættinum Lög og réttur á Hringbraut í gærkvöld en þar svaraði hann spurningunni hvort engin samkeppni sé á eldsneytismarkaði.
Þáttinn má sjá hér á hringbraut.is, en nýbirt skýrsla stofnunarinnar um þetta efni hefur vakið mikla athygli og umtal - og enda þótt olíufélögin hafi fagnað gerð hennar telja þau fráleitt að allt sem þar komi fram standist skoðun.
Niðurstaða skýrslu eftirlitsins var á þá leið að á eldsneytismarkaðnum væri að finna aðstæður og háttsemi olíufélaganna sem hindri samkeppni, almenningi til verulegs tjóns. Um sé að ræða fákeppnismarkað. Í raun fari þar fram þegjandi samhæfing við verðákvörðun og aðgangshindranir hvað nýja aðila inn á markaðinn varði. Álagning hafi verið óeðlilega há undanfarin ár, en fram kemur í skýrslunni að árið 2014 hafi neytendur greitt um 4.000 til 4.500 milljónum of mikið fyrir eldsneyti. Eftirlitið líti svo á að þörf sé á íhlutun á markaðnum til að stuðla að aukinni samkeppni og til að bæta hag almennings.
Allt þetta var til umfjöllunar í þættinum Lög og réttur í gærkvöld sem er endursýndur í dag.