Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans segir mygluvandann á Landspítalanum afleiðingu af ónógu viðhaldi um langt árabil en tekist hafi að afmarka vandann við tiltölulega lítinn hluta af húsnæði spítalans.
Mygluvandinn sé innan viðráðanlegra marka og unnið að endurbótum á grundvelli áætlunar. Þetta kom fram í samtali Páls Matthíassonar forstjóra LSH við Ólafana í gærkvöld, en þáttur þeirra verður endursýndur í dag og að auki sjáanlegur á vef stöðvarinnar eins og allir aðrir þættir Ólafanna sem verið hafa á dagskrá í vetur.
Þættir Ólafanna eru vikulega á dagskrá Hringbrautar og fjalla um þjóðfélagsmál að hætti hagfræðinganna sem kunnir eru fyrir að leyna ekki skoðanir sínar á mönnum og málefnum.