Páll biður fólk að fara ekki á „límingunum" vegna skotárásanna

Páll Magnússon, þingmaður Sjálfstæðisflokksins telur að of mikið hafi verið gert úr skotárás sem framin var á bíl borgarstjórans í Reykjavík og hús stjórnmálaflokka. Hann tjáir sig um málið á Facebook og biður fólk um að fara ekki límingunum.

„Nú vil ég ekki gera lítið úr hættunni sem stafar af því að truflaður maður hleypur um með byssu og skýtur á hús og bíla. En fyrir alla muni hættið að tala um yfirvofandi hryðjuverkahættu, brynvarin ökutæki og sérsveitir til að passa stjórnmálamenn. Ekki fara á límingunum!," skrifar Páll.

Skotárásirnar hafa vakið mikla athygli síðustu tvær vikurnar en skotið var skrifstofur Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar í þar síðustu viku og síðustu helgi var tveimur skotum hleypt af á fjölskyldubíl Dags B Eggertssonar, borgarstjóra. Tveir menn hafa verið handteknir í tengslum við málið.