Páll ásgeir mætir í lífsstíl í kvöld

Einn rómaðasti leiðsögumaður landsins, Páll Ásgeir Ásgeirsson er fyrsti gestur Sigmundar Ernis í heilsu- og útivistarþáttinn Lífsstíl á Hringbraut í kvöld, en fáir landsmenn þekkja land sitt betur en þessi vestfirski náttúruunnandi.


Páll Ásgeir hefur verið leiðsögumaður á vegum Ferðafélags Íslands um langt árabil og átt mikinn þátt í velgengni allra gönguverkefna félagsins á síðustu árum þar sem þúsundir Íslendinga hafa þust upp um fjöll og firnindi og byrjað nýjan lífsstíl í faðmi óspilltrar náttúrunnar. Páll segist hafa fæðst úti, sem er raunar mjög nærri lagi því hann er alinn upp í fjallasal Vestfjarða og byrjaði strax sem strákur að fara á fjöll og meta frelsið sem þau veita hverjum gangandi manni. Hann hefur ritað fjölda bóka um gönguleiðir og náttúruupplifun sem hafa notið vinsælda og verið endurútgefnar.


Hann segir í þættinum í kvöld að það allra mikilvægasta fyrir fólk sem er að byrja göngur að fara ekki fram úr sér; kaupa sér dýran útbúnað og haka við nokkur helstu fjöllin áður en úthaldið bregst; best sé að byrja smátt, jafnvel á litla bæjarfjallinu og fara þangað reglulega til að safna orku og æfingu svo úr verði breyttur lífsstíll sem endist fólki um aldur og ævi - og geri því bara gott.


Þátturinn er frumsýndur klukkan 20.00 í kvöld.