Páll Matthíasson verður á fullum launum sem forstjóri Landspítalans út skipunartíma sinn þrátt fyrir að hætta störfum á næstum dögum. Skipunartími hans er fimm ár og á hann því eftir tvö og hálft ár af skipunartíma sínum.
MBL greinir frá þessu og segir að hann hafi sjálfur ákveðið að hætta. Hann ætlar svo að vera næsta forstjóra innan handar fyrstu mánuðina. Þá ætlar hann að vinna verkefni fyrir ráðuneytið.
Samkvæmt nýjasta Tekjublaði Frjálsrar verslunar var Páll með 2,6 milljónir króna í tekjur á mánuði í fyrra. Þá er hann á sérstökum launataxta innan Landspítalans.