Pálína óskar eftir aðstoð og vonast eftir kraftaverki: „þið megið gjarnan deila þessu fyrir mig“

„Ég er búin að leita eftir aðstoð við þetta mál áður og ákvað enn og aftur að gera það hér í veikri von um að finna eigandann.“

Þetta segir tónlistarkonan Pálína Vagnsdóttir á Facebook. Sumarið 2007 stóð hún fyrir Listasumri á Súðavík. Eftir samkvæmi um kvöldið, þegar starfsfólk var að þrífa eftir ballið fundu þau giftingahring. Inni í honum er letrað með hástöfum: SIGGA. Pálína ákvað að gera tilraun til að finna eigandann. Hún segir:

„Mér finnst alveg ægilega leiðinlegt að koma honum ekki til skila. Þetta gæti verið einhver Súðvíkingur, tengdur Súðavík eða einhver sem hefur verið á eigin vegum.

Hafið þið heyrt að einhverjum sem hefur týnt hringnum sínum og á maka sem heitir \"SIGGA\". Viljið þið hjálpa mér í þessu máli elskurnar. Mér líður ekki vel að koma ekki þessum hring til skila þó langt sé um liðið,“ segir Pálína og biður fólk að setja sig í samband við sig á Facebook hafi það einhverja hugmynd um hver eigandinn sé. Pálína segir að lokum:

„Þið megið gjarnan deila þessu fyrir mig. Kraftaverkin gerast ef við trúum því.“

\"\"