Pabbi vildi móðga sem flesta

Viðar Guðjohnsen, sonur og alnafni hvatvísasta frambjóðandans í leiðoigakjöri sjákfstæðismanna um nýliðna helgi er ánægður með karlinn hann föður sinn og segir hann hafa náð að hrista almennilega upp flokknum.

Hann setur athyglisverða færslu inn á fésbók sína og talar þar hreint út: \"Pabbi gerði sér auðvitað allt frá byrjun fulla grein fyrir því að hann myndi ekki sigra og nefndi hann það í flestum viðtölum. Fyrir utan það að etja kappi við sitjandi borgarfulltrúa, fyrrum bæjarfulltrúa og fyrrum þingmann þá væri það nokkuð fjarstæðukennt að menn myndu fylkja sér á bakvið fjölkvæni hins sterka.

Voru hinar og þessar sögur farnar á kreik um ástæður þess að hann gaf kost á sér, ef ekki til að sigra. DV birti ritstjórnarpistil um að framboðið myndi gera aðra harðlínumenn að hófsemdarmönnum o.s.frv. Ekkert af þessu var rétt. Þótt vissulega hafi framboðið sýnt að þessir menn sem hafa verið ásakaðir um hitt og þetta eru ljúf sem lömb miðað við pabba gamla.

Ástæðan var samt ekki svo flókin.

Pabbi vildi einfaldlega segja ákveðna hluti sem aðrir þora ekki að segja og sumir vilja ekki heyra. Hann vildi líka gera það með sem mestum látum til þess að móðga sem flesta. Já, það var einbeittur brotavilji þar á ferð. Fólk er svo móðgunargjarnt og frekt þessa dagana þannig að það varð ekki erfitt. Svo hló hann að allri frekjunni og ég held að næstu fjölskylduboð verði hin mesta skemmtun.\"

Svo mörg eru þau orð.