Pabbi vildi ekkert af mér vita

\"Pabbi átti sjálfsagt ekki von á því að einn daginn myndi ég banka upp,\" rifjaði athafnamaðurinn Jón Ólafsson upp í viðtalsþættinum Mannamáli á Hringbraut fyrr í vikunni þar sem hann sagði jafnframt að pabbi sinn hefði ekkert vilja vita af sér.

Jón ólst upp í Keflavík, pabbi hans skipherra á Gæslunni og varðskip með honum um borð var loksins komið til Suðurnesja. Jón var átta ára og gekk um borð, vildi hitta pabba sinn, þennan flotta mann í múnderingu yfirvaldsins: \"Það var mér mikið tilhlökkunarefni að hann kæmi loksins í bæinn og ég fengi að sjá hann í öllum einkennisbúningnum. Svo ég fer strax og skipið er komið að bryggju, geng um borð og niður í skipið, banka á dyrnar og kynni mig, en hann hafði ekkert við mig að segja. Það kom ekkert frá honum. Hann fór bara í land og ég elti hann, en hann labbaði svo hratt að ég varð að hlaupa, en það kom fyrir ekki; hann rétti mér ekki einu sinni túkall.\"

Jón segir þessa uppákomu, einu tilraun hans til að nálgast föður sinni, ekki hafa beygt sig heldur hert sig, gert sig í reynd að þeim keppnismanni sem hann hafi ávallt verið í lífinu.

Hann ólst upp hjá afa sínum og ömmu öll sín ár í Keflavík og segir að það hafi gert sér gott, en kannski hafi hann alltaf framan af talað frekar gamla íslensku fyrir vikið og verið óhemju guðhræddur.

Þáttinn má sjá í heild sinni inni hér: