Sigurður Aðalsteinsson, faðir Gylfa Þórs Sigurðssonar, fullyrðir í samtali við Vísi í dag að það sé verið að brjóta á mannréttindum sonar síns í tengslum við rannsókn lögreglunnar í Manchester vegna gruns um kynferðisbrot gegn ólögráða einstaklingi.
„Þetta er orðið að mannréttindabroti,“ segir Sigurður í samtali við Vísi og veltir fyrir sér hver staðan væri ef Íslendingur hefði verið stöðvaður í Þýskalandi og sakaður um hlut í ljósi þess að það sé að verða komið eitt og hálft ár frá því að Gylfi var tekinn í yfirheyrslu.
Gylfi hefur gengið laus gegn tryggingu í fimmtán mánuði en lögreglan í Manchester og saksóknari hafa ekkert verið tilbúnir að tjá sig um málið. Í samtali við Fréttablaðið fyrir helgi sagði lögreglan engar nýjar vendingar í málinu en að von væri á niðurstöðu innan skamms.
Sigurður segir í samtali við Vísi að unnið sé að að því að flytja lögheimili Gylfa til Íslands og að umsóknin sé á borði Þjóðskrár. Hann sé um leið bundinn af því að mega ekki fara frá Englandi þar sem þá gerist hann brotlegur við lög.
„Gylfi er náttúrulega íslenskur ríkisborgari. Á fjölskyldu sem er flutt heim. Hann er fastur á Englandi þar sem hann sætir farbann,“ segir Sigurður.
Eiginkona Gylfa, Alexandra Helga Ívarsdóttir, er búsett á Íslandi ásamt dóttur þeirra.
Guðlaugur Þór Þórðarsson, þáverandi utanríkisráðherra, hafi veitt þeim liðsinni árið 2021 en að Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir sé ekki jafn áfjáð að aðstoða Hafnfirðinginn.
Þá furðar Sigurður sig á hegðun KSÍ sem hafi ekki sýnt neinn áhuga á málefnum Gylfa né boðist til að veita fram aðstoð sína í málefnum sonar síns sem var einn besti leikmaður karlalandsliðsins í tæpan áratug.