Pabbi gat verið stór í kjaftinum

"Pabbi var alveg alveg yndislegur maður. Hann var svo hlýr og yndislegur maður," segir Guðný Halldórsdóttir um föður sinn Halldór Kiljan Laxness en hún var gestur Sigmundar Ernis í nýjasta þætti Mannamáls á sjónvarpsstöðinni Hringbraut. Þátturinn hefur vakið mikla athygli fyrir óvenjulega hreinskilni Guðnýjar um menn og málefni.


"En hann gat verið stór í kjaftinum," minnist hún auðveldlega. "Hann gat lagt svo mikla áherslu á mál sitt að fólk kipptist við," segir hún jafnframt og minnir á mikilvægi þess að segja meiningu sína, annars verði fólk undir. "En hann blótaði aldrei, ekki svo ég muni." 


Í þættinum lýsir Duna, eins og hún var kölluð eftir að þýsk vinnukona á Gljúfrasteini gat ekki borið fram nafn hennar, uppeldisárum sínum í faðmi Nóbelskáldsins á einkar persónulegan máta. Hann hafi kannski ekki leikið sér mikið við þær systur í ejginlegum skilningi, en daglegir göngutúrarnir um umhverfi Gljúfrasteins hafi verið þeirra ævintýri; alltaf hafi hann falið þar sælgæti á óvenjulegum stöðum - og svo var verkefni stelpnanna að finna dásemdina; pabbinn hefði alltaf verið jafn hissa að góðmeti fyndist á þessum stöðum.


"Hann var svo mikill náttúruunnandi. Hann var fyrst og síðast náttúruunnandi," segir Guðný í hispurslausu viðtalinu þar sem mamma hennar fær líka mikla vigt. "Þau hittust af því mamma var að selja honum  sósíalistablað," rifjar hún upp og segir þau alla tíð hafa verið mjög ástfangið par. "Pabbi þurfti svo mikið á mömmu að halda," segir hún í samtalinu.


Hægt er að nálgast þáttinn allan á hringbraut.is, undir sjónvarpsflipanum og einnig í klippum á forsíðu vefjarins.