Nú styttist í að stormurinn skelli á Norðlendingum af krafti. Þegar hefur hvesst á fjöllum og er búið að loka Öxnadalsheiði.
Þar var stórhríð og 23 metrar á sekúndu rétt áðan áður en veginum var lokað eftir því sem fram kemur hjá Rúv.
Þjóðvegur 1 er enn lokaður frá Reykjahlíð á Norðurlandi eystra og að stórum hluta á öllu Austurlandi.
Vindstyrkur gæti hæglega víða um land náð 28 metrum á sekúndu og 40 m í hviðum.
Óveðrið er aftur á móti gengið niður austanlands og urðu afleiðingar minni en hægt var að vona. Heimamenn þakka það góðum undirbúningi og samstilltu átaki.