Finnbjörn A. Hermannssson, formaður Félags byggingarmanna og Þorbjörn Guðmundsson framkvæmdastjóri Samiðnar mæta á Þjóðbraut í kvöld.
„Það er verið að greiða þessum erlendu starfsmönnum kannski 250 þúsund kall á mánuði. Íslenskir iðnaðarmenn í svipuðum störfum eru kannski með 500 þúsund”, segir Finnbjörn um það sem vitað er að eigi sér nú stað þegar mörk merki um þenslu sjást í efnahagskerfinu.
Það eru margir kranar upp í loft nú, mikið byggt og framkvæmt.
Gríðarleg þörf er fyrir erlent vinnuafl og segja þeir Finnbjörn og Þorbjörn að mjög takmarkaðar upplýsingar séu um það á hvaða kjörum slíkir einstaklingar eru í þessum geira og hvaða faglegu hæfni þeir hafi. Þó sé vitað að laun erlendra karla í byggingavinnu sé til hálfs á við íslenska verka- eða iðnaðarmenn. Þorbjörn segir að óleyfilegt sé að mismuna mönnum á grundvelli þjóðernis en það eigi sér samt stað.
Mest er nú byggt af hótelum en fyrir hrun var byggingarmagnið að miklu leyti íbúðarhúsnæði.