Fréttir eru misvísandi um hvort íslensku Everestfararnir Ingólfur Ragnar Axelsson og Vilborg Arna Gissurardóttir munu halda áfram göngu sinni á Everest-fjall eftir mannskæðan jarðskjálfta sem skók Nepal undir morgun að íslenskum tíma. Samkvæmt Facebook-síðu Vilborgar er hópur hennar í fyrstu búðum vel á sig kominn og hyggst halda ótrauður áfram þrátt fyrir að snjóflóð af völdum skjálftans hafi valdið mannskaða og eignatjóni á gönguleið fjallgöngufólks á staðnum.
Jarðskjálftinn í morgun olli miklu manntjóni í Nepal, en óttast er að á annað þúsund manns hafi tapað lífi sínu þegar hann reið yfir.
Rétt ár er nú liðið frá því Ingólfur og Vilbiorg urðu frá að hverfa úr hlíðum Everest vegna mannskæðra snjóflóða á staðnum - og er veruileiki þeirra núna áþekkur; talið er að minnst 13 manns hafi farist af völdum flóðanna í fjallinu í morgun, en sem fyrr segir ollu þau ekki skaða í búðunum sem Íslendingarnir eru staddir í.
Ef allt gengur að óskum mega íslensku Everest-fararnir búast við því að komast á topp hæsta fjalls heims eftir mánuð, svo fremi að leiðangrinum verði fram haldið.