Rætt var við Dag í Morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun: \"Ég held að þetta mál hafi verið sett fram af góðum hug til þess að undirstrika áherslu borgarinnar á mannréttindi. Við stóðum hins vegar þannig að því að það skaðaði bæði þann málstað og ég held að það hafi skaðað meirihlutann og það er bara eitthvað til að horfast í augu við finnst mér. Ég held að það skipti bara mjög miklu máli þegar við vinnum þetta mál áfram að við gerum það þá betur og með því þá endurvinnum við hugsanlega eitthvert traust,“ sagði Dagur í þættinum.
Hann sagði einnig að ekki hafi verið haft samband við utanríkisráðuneytið áður en tillagan var samþykkt en hann hafi rætt við utanríkisráðherra um helgina. Aðspurður um það hvort hann hefði íhugas afsögn vegna málsins sagði hann að honum þyki það stór orð hjá fulltrúum minnihlutans að leggja það til.
Dagur sagði í þættinum að meirihlutinn hefði ekki talið sig vera að fara á svig við lög með ákvörðun borgarstjórnar. Í samráðinu sem framundan væri verði farið yfir sjónarmið utanríkisráðuneytisins og fleiri: \"Lærdómurinn af því sem orðið er er að ég eigi að fullyrða minna á þessu stigi og láta bara vinna þetta almennilega. Skoða þetta frá öllum hliðum áður en við svo mikið sem tökum ákvörðun um næstu skref,“ sagði borgarstjórinn.
Hann var spurður í þættinum hvort heppilegt væri að koma fram með nýja tillögu sem er þrengd niður á hernumdu svæðin: \"Ég hef ekki slegið því föstu að það komi ný tillaga,“ svaraði Dagur og bætti við: \"Núna förum við í þetta samráð og tökum ekki ákvörðun um næstu skref fyrr en að því loknu.“