Grænlensk þingnefnd vinnur að tillögugerð um form og innihald stjórnarskár fyrir frjálst og fullvalda Grænland.
Líkast til munu innan þriggja ára liggja fyrir bæði drög að frumvarpi um sjálfstæði og fullveldi Grælands og fyrsta uppkast að stjórnarskrá frjáls Grænlands.
Síðar verður þjóðaratkvæðagreiðsla um bæði sjálfstæði og fullveldi og um stjórnarskrá þó ekkert sé fastmælum bundið um það áform.
Í Færeyjum er undirbúningur að stjórnaskrá nokkuð á veg kominn.
Verði Grænland og Færeyjar frjáls og fullvalda ríki á næstu áratugum varðar það nokkru fyrir Ísland.
Líkast til þarf Ísland að gera nokkuð að milliríkjasamningum við þessi nýfrjálsu ríki annað hvort tvíhliða eða í samfloti við önnur ríki.