Óvíst hve margir eldislaxar sluppu út

 

Eftirlitsstofnunin Matvælastofnun veit ekki og getur ekki sannreynt hversu margir norskir eldislaxar sluppu úr eldiskví laxeldisfyrirtækisins Arnarlax í Tálknafirði í júlí í sumar.

Þetta segir í frétt á Stundinni  um slysasleppingar hjá Arnalaxi.

Ennfremur segir í fréttinni:

 Göt mynduðust á eldiskví Arnarlax sem í voru rúmlega 150 þúsund eldislaxar. Tæplega fimm þúsund færri fiskar voru í kvínni þegar slátrað var úr henni í byrjun október en áttu að vera í kvínni. Þetta kemur fram í svörum frá Matvælastofnun við spurningum Stundarinnar um slysasleppinguna.  Slysasleppingin hjá Arnarlaxi í Tálknafirði í sumar undirstrikar landlæg vandamál í sjókvíaeldi. Matvælastofnun getur ekki sannreynt upplýsingar um slysasleppingar. Í Noregi er áætlað að þrefalt fleiri eldislaxar sleppi úr sjókvíum en þeir villtu laxar sem synda upp í norskar ár.