Óvissan verri en flutningur

Hvorki er hægt að halda í starfsmenn eða ráða í stöður sem losna á Fiskistofu vegna óvissunnar um flutning starfseminnar til Akureyrar.  Fiskistofustjóri segir stofnunina vera að liðast í sundur.


Eyþór Björnsson Fiskistofustjóri segir í samtali við Morgunblaðið að það hafi komið honum verulega á óvart að Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegsráðherra legði ekki lengur áherslu á flutning stofnunarinnar til Akureyrar í lok árs.  Með því eykst enn óvissuástandið .  Starfsmenn hafa hætt í unnvörpum og aðrir eru í leit að atvinnu, enda enginn nema Fiskistofustjóri sem hyggst flytja með stofnuninni.  Hvorki er hægt að auglýsa stöður sem losna né skapa tryggt vinnuumhverfi fyrir þá sem eftir eru.


Guðmundur Jóhannesson, fulltrúi starfsmanna Fiskistofu, segir í samtali við Kjarnann að stofnunin sé að liðast í sundur vegna ákvörðunar ráðherrans sem nú virðist sjálfur ekki vera sannfærður um ágæti hennar