„Vinnumarkaðurinn er í algerri biðstöðu vegna kosninganna“. Þetta kom fram í máli Gylfa Arnbjörnssonar, forseta ASÍ á formannaþingi sambandsins í gær.
Gylfi mætir á Þjóðbraut í kvöld með Eyjólfi Árna Rafnssyni, formanni Samtaka atvinnulífsins.
Lækkun tryggingagjalds ætti að vera eitt helsta verkefni næstu ríkisstjórnar segir Eyjólfur þar sem gjaldið sé verulega íþyngjandi fyrir fyrirtækin í landinu og hafi átt að lækka fyrir löngu. Skattahækkanir séu ekki lausn til þess að byggja upp innviði samfélagsins heldur eigi áherslan að vera á að treysta útflutningsgreinarnar og auka tekjur ríkisins með þeim hætti.
Gylfi tekur undir með lækkun tryggingagjaldsins, hins vegar þurfi eitthvað að koma í staðinn fyrir þann sjóð sem gjaldið stóð undir enda hafi sá sjóður sinnt fleiru í velferðarkerfinu en eingöngu fjármögnun atvinnuleysisbóta eftir hrun. Óvissa á vinnumarkaði sé komin til af því að ekki sé staðið undir velferðar og heilbrigðisþjónustu í landinu.