Aðalfundur Landverndar var haldinn sl. laugardag. Landvernd vill að vísindaleg þekking á áhrifum laxeldis í sjó verði höfð að leiðarljósi við mótun leikreglna um laxeldi í sjó. Morgunblaðið segir frá þessu.
Aðalfundurinn krefst þess að stjórnvöld móti skýra stefnu sem banni ræktun eldislax í sjó. nema tryggt sé að erfðablöndun geti ekki átt sér stað.
Landvernd telur að fullyrðingar um kalt umhverfi við Íslandsstrendur komi í veg fyrir laxalúsafaraldur séu ekki studdar af rannsóknum og að stuttur reynslutími sjókvíaeldis á Íslandi skapi óvissu um laxalús.
Landvernd vill að vísindaleg þekking á áhrifum laxeldis í sjó verði höfð að leiðarljósi stjórnvalda við að móta leikreglur um fiskeldismál á Íslandi. Það sé áhyggjuefni að enginn sérfræðingur Hafrannsóknarstofnunar sitji í starfshópi sjávarútvegs- og landbúnaðarr´ðaherra sem vinnur nú að stefnumótun í fiskeldi.
Landvernd vill að stjórnvöld banni ræktun á frjóum laxi í sjó nema tryggt sé að erfðablöndun við íslenska laxastofna geti ekki orðið. Landvernd telur að áhættan sem fylgir stórauknu laxeldi í sjó hér við land og þeim aðferðum sem hér eru notaðar vera óásættnalega fyrir íslenska náttúru.
Áform eru um um að laxeldi í sjó við Íslandsstrendur nemi um eitthundrað áttatíu og fimm þúsundum tonnum á ári en er nú um átta þúsund tonn. Langtímameðaltal slysasleppinga úr sjókvíum er um einn lax á hvert tonn sem myndi þýða um eitthundrað áttatíu og fimm þúsund laxar á ári sem slyppu eða meira en helmingi fleiri en stofnstærð villtra íslenskra laxastofna.
rtá
Nánar www.mbl.is www.landvernd.is