Óvissa með kjarasamningana

Forsendunefnd kjarasamninga skilar niðurstöðu í síðasta lagi 28. Febrúar næstkomandi. Teljist forsendur kjarasamninga á almenna markaðnum halda þá gilda samningarnir til loka árs 2018. Forsendur í húsnæðismálum og um aukinnkaupmátt standast þó ekki eins og er að mati beggja varaforseta ASÍ, Ólafíu B. Rafnsdóttur og Sigurðar Bessasonar.

Bæði hafa ýjað að því í viðtölum síðustu daga að kjarasamningum kunni að vera sagt upp í lok mánaðarins, segir á vefsíðu ASÍ.

Sigurður, sem er 2. varaforseti sagði í viðtali við Spegilinn á miðvikudag að í fjárlögum fyrir árið 2017 vanti fjármagn fyrir 300 félagslegum íbúðum en í kjarasamningnum sé gert ráð fyrir að ríkið komi með fjármagn fyrir 600 íbúðum á ári næstu árin.

Ólafía sem er 1. varaforseti Alþýðusambands Íslands, sagði í samtali við Visðskiptablaðið ljóst að forsendan um aukinn kaupmátt standist. Aftur á móti sé verið að bíða eftir tölum frá Hagstofunni um launaþróun og því sé enn óvíst hvort sú forsenda standist.

Því er spurt núna á forsíðu ASÍ: Verður kjarasamningum sagt upp í lok mánaðarins?