Óviss um framboð

Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra segist ekki enn hafa ákveðið hvort hún muni gefa kost á sér til þings eða til forystu í Framsóknarflokknum.

Hún sagði Sigmund Davíð Gunnlaugsson vera mann sem fær stórar hugmyndir og laðar fólk að sér og til vinnu fyrir Framsóknarflokkinn.

Aðspurð sagðist Lilja ekki vera viss hvað hún gerir varðandi framboð en rétt væri að fært hafi verið í mál við hana um að fara í framboð.