Bryndís Hlöðversdóttir ríkissáttasemjari segist vona að sú vinna sem farið hefur í Salek-samkomulagið glatist ekki þrátt fyrir að málið hafi verið sett á ís.
Salekhópurinn hefur verið að frá því árinu 2013 og segir Bryndís að sú vinna sem sé að baki muni alltaf verða til gagns, hvert sem framhald Salek verður.
Ekki eru miklar annir í karphúsinu þessa dagana þó þar séu nokkrar launadeilur til meðferðar. Grunnskólakennarar og sjómenn eru með lausa samninga og því óvíst hvort og hvenær þær deilur rata á borð ríkissáttasemjara.
Óvissa er um stóru samninga þar sem Alþýðusambandið ræður ráðum sínum eftir að Salek var sett á ís. Hugsanlegt er að samningar verði lausir í febrúar næstkomandi.
Viðtal við Bryndís er í Þjóðbraut klukkan 21:00 í kvöld.