Í október og nóvember á þessu ári lánuðu bankarnir íslenskum heimilum tæplega 24 milljarða í óverðtryggðum lánum. Árið 2017 námu samskonar lán yfir allt árið ríflega 24 milljörðum króna og því um nokkurs konar sprengingu að ræða á þessu ári þegar kemur að óverðtryggðum lánum. Morgunblaðið greinir frá og byggir á nýjum tölum Seðlabanka Íslands frá viðskiptabönkunum.
Í umfjöllun Morgunblaðsins kemur einnig fram að í fyrsta sinn frá árinu 2015 reyndust uppgreiðslur verðtryggðra húsnæðislána hærri en nýjar lántökur. Verðtryggð lán banka til heimila, með veði í húsnæði, drógust saman um tæpan milljarð í nóvember. Einnig kemur fram að á fyrstu 10 mánuðum ársins hafi ný útlán á þessu formi, umfram uppgreiðslur, numið ríflega 5,2 milljörðum að meðaltali.