Óvenjumikil aukning umferðar í febrúar

Umferðin á höfuðborgarsvæðinu í febrúar jókst um 7,1 prósent, sem telst mikil aukning í febrúar og mun meiri aukning en á sér stað að jafnaði í þessum mánuði. Hluti skýringar á mikilli aukningu gæti verið að fyrir ári var mjög lítil aukning í umferðinni í febrúar. Frá áramótum hefur umferðin aukist um 4,3 prósent á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kemur fram í frétt Vegagerðarinnar.

Í fréttinni segir að umferðin hafi aldrei verið meiri yfir þrjú lykilmælisnið Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu, en hún jókst um 7,1 prósent milli febrúarmánuðar 2018 og 2019.  Þetta er mun meiri aukning en varð í sama mánuði fyrir ári síðan og leita þarf aftur til ársins 2016 til að finna sambærilega aukningu í febrúarmánuði.

Umferðin jókst lang mest yfir mælisnið á Reykjanesbraut (7,2 prósent) og á Vesturlandsvegi (9,8 prósent). Vegagerðin telur þessa miklu aukning að einhverju leyti geta skýrst af lítilli aukningu í febrúar á síðasta ári. Umferðin hefur aukist að jafnaði um 2,8 prósent í febrúar frá árinu 2005. Þessi aukning nú er því 2,5 sinnum meiri en í meðalári.