Óvenjulegur sögur venjulegs fólks

Örlögin er heiti nýrrar þáttaraðar á Hringbraut þar sem Sigmundur Ernir Rúnarsson ræðir við venjulegt fólk sem ratað hefur í óvenjulegar aðstæður í lífi sínu, brotlent svo að segja, en náð að rísa upp að nýju.

\"Hér er af nógu að taka,\" segir Sigmundur Ernir sem kunnur er af viðtalsþáttum sínum, svo sem Mannamálum þar sem hann ræðir við kunna Íslendinga um líf þeirra og starf, en þeir þættir eru á meðal vinsælasta efnis Hringbrautar. \"Í Örlögunum ræ ég á ný mið og freista þess að fanga allar þessar hversdagslegu sögur af fólki sem er að glíma við sjálft sig, erfiðleikana og andstreymið og nær að lokum, eftir harða vinnu í sjálfu sér, að njóta lífsins að fullu á ný.\"

Fyrsti gestur Sigmundar Ernis er Kristján Rúnar Egilsson sem varð fyrir alvarlegu vinnuslysi fyrir nokkrum árum og kynntist þunglyndi og kvíðaröskun þegar hann var að jafna sig á óförunum í einverunni heima hjá sér. Kristján lýsir þessum ferli á einstaklega hispurslausan hátt svo magnað er á að hlýða, að því er þáttastjórnandinn segir, en starfsendurhæfing á vegum VIRK hefur nú skilað Kristjáni aftur út á vinnumarkaðinn svo gleðin geislar af honum.

\"Svona sögur skipta miklu máli,\" bendir Sigmundur Ernir á, en þættirnir eru unnir í samvinnu við VIRK Starfsendurhæfingarsjóð sem skilað hefur þúsundum landsmanna út í atvinnulífið á síðustu árum eftir að þeir hafa glímt við tímabundið mótlæti.

Örlögin eru frumsýnd klukkan 20:15 í kvöld og endursýnd strax klukkan 22:15.