Óvenjulágt óson mælist nú yfir Íslandi og er spáð lágu ózoni yfir helgina og víða sólbjörtu veðri. Ef útvistarfólk er um lengri tíma í sól, þar sem snjór einnig hylur jörðu, er rík ástæða til að verja sig gegn geislum sólar, til dæmis með því að nota sólgleraugu og sólvörn.
Þetta kemur fram í tilkynningu ffrá Veðurstofu Íslands í dag, en ætla má að mikill fjöldi Íslendinga stundi útivist nú um helgina í fallegu og afar björtu vetrarveðri.
Ósonlagið er svæði í efri hluta lofthjúps jarðar þar sem styrkur ósons er meiri en annars staðar í lofhjúpnum, að því er fram kemur á Vísindavef Háskóla Íslands. Lofthjúpurinn er þunnt gaslag utan um jörðina. Hann er að mestu úr súrefni og nitri en í honum eru einnig aðrar gastegundir. Óson finnst í raun alls staðar í andrúmsloftinu en í mismiklu magni eftir hæð. Mestur eru styrkurinn í um 20 km hæð frá jörðu.
Búast má við dálítlum éljum austanlands í dag en víða verður léttskýjað vestantil. Frost verður á bilinu 1 til 15 stig, kaldast á Norðurlandi, en frostlaust með suðurströndinni. Hægt og kalt og bjart veður í fyrramálið. Suðaustan 8 til 15 og fer að snjóa suðvestanlands seint annað kvöld