Óvenjuleg hlýindi í september

Spáð er 12 stiga hita norðaustanlands næstu daga, sem þykir óvenjuhlýtt miðað við árstíma.

Eftir óvenju kaldan fyrrihluta sumars á Norðurlandi kemur fram í gögnum Veðurstofu að mjög hafi ræst úr í ágúst og september. Samkvæmt Veðurstofunni fer sumarið 2015 í flokk hefðbundinna sumra síðari ár ef litið er til alls sumarsins.

Það er ekki síst september sem veldur því að Norðlendingar ganga sáttir frá sumrinu 2015 en á Akureyri var meðalhitinn í september 9,6 stig, 3,2 stigum ofan meðallags 1961 til 1990 og 1,7 yfir meðallagi síðustu tíu ára. Meðalhiti í Reykjavík mældist á sama tíma 9,1 stig, 1,8 stigum yfir meðallagi áranna 1961 til 1990 og 0,6 stigum ofan meðallags síðustu tíu ára. Á Höfn í Hornafirði var meðalhiti 9,8 stig og 9,5 á Egilsstöðum.

Sólskinsstundir í Reykjavík mældust 93,0 í september sem er 32 stundum undir meðallagi áranna 1961 til 1990 en 26 stundum undir meðallagi síðustu tíu ára. Á Akureyri mældust sólskinsstundirnar 104,5, 12 stundum fleiri en í meðalári.

Veðurstofan varar við  talsverðri rigningu sunnan- og austanlands en miklir vatnavextir eru í ám á sunnan- og vestanverðu landinu.

Þannig er spáin í dag og á morgun: Suðaustan 5-13 m/s, hvassast suðaustantil. Rigning um mest allt land, en talsverð úrkoma sunnan- og austantil. Suðaustan 5-10 um hádegi og rigning eða skúrir, en úrkomulítið fyrir norðan. Suðaustan 8-15 suðvestantil í kvöld og rigning. Suðaustan 5-10 á morgun og rigning sunnan- og vestanlands, en úrkomulítið norðantil. Hiti 4 til 12 stig, hlýjast á NA-landi.