Óvenju hátt hlutfall feitra nýbura

Á árunum 2011 til 2014 fæddust 842 of feitir nýburar á Íslandi, en nýburar sem við fæðingu eru meira en fjögur og hálft kíló eru skilgreindir sem svokallaðir þungburar.

Þessar tölur eru athyglisverððar þegar þær eru bornar saman við fjölda þungbura í Bretlandi, en frá árinu 2011 hafa ríflega 1400 börn þar í landi vegið meira en fjögur og hálft kíló, eða litlu fleiri en á Íslandi á sama tíma, þótt Bretar séu margfalt fjölmennari en Íslendingar, eða alls um 64 milljónir á móts við 330 þúsund Íslendinga.

Morgunblaðið fjallar um þetta efni í dag og ræðir við Snorra Einarsson fæðingar- og kvensjúkdómalækni hjá lækna- og tæknifrjóvgunarstofunni ART Medica sem segir það vissulega áhyggjuefni hversu mörg börn fæðist of þung á Íslandi - og einnig hversu hátt hlutfall þjóðarinnar eigi við offitu að stríða.

\"Íslenskar mæður,\" segir hann \"fæða yfirleitt stór börn. Þjóðin er stór og þung og þyngist stöðugt. Hlutfall þeirra sem glíma við offitu er nálægt 20%, en um 12% annars staðar á Norðurlöndum sem þýðir að við erum nálægt 50% hærri í offitu en grannþjóðirnar.\"