Óvenju erilsöm nótt hjá lögreglu

Slagsmál voru nokkuð áberandi í næturlífi höfuðborgarinnar og þurfti lögreglan að sinna nokkrum slíkum í nótt, þarr á meðal atviki þar sem maður var sleginn svo illa í andlitið að flytja þurfti hann á slysadeild þar sem hann gekkst undir aðgerð vegna áverkanna sem hann hlaut.
 
Skömmu síðar upphófust önnur slagsmál í miðbænum, og þar þurfti lögregla einnig að skakka leikinn. Á endanum var einn maður handtekinn og er hann í haldi haldi lögreglu vegna málsins.
 
Í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að nóttin hafi verið óvenju erilsöm. Sinna þurfti á sjötta tug verkefna, og í flestum tilfellum var lögregla að „aðstoða fólk með ýmsum hætti við úrlausn sinna mála með einum eða öðrum hætti\" eins og segir í tilkynningunni.
 

Þá voru tveir menn handteknir vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Annar þeirra var þar að auki bæði drukkinn og réttindalaus.