Óveðrið: "þetta er með því verra"

\"Við erum að búast við að veðrið verði verst suðaustanlands og allra syðst; við Öræfajökul, undir Eyjafjöllum og fjöllum á þessu svæði. Við erum að tala um stöðugan vindstyrk yfir 28 m/s og hviður við fjöll geta farið upp í og jafnvel yfir 50 m/s og það er gríðarlegur vindur og ekkert grín að fást við það,“ segir Birta Líf Kristinsdóttir, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands.
 

Þetta segir hún í samtali við fréttavef RÚV í morgun og bætir því við að erfitt sé að segja til um hvort veðrið verði það slæmt að kalla þurfi út björgunarsveitir. Rétt sé að benda fólki á að binda niður lausamuni: \"Þetta er með því verra á landinu, þetta er komið á efri stig skalans. Við höfum alveg séð rúður springa í svona veðrum. Það er ýmislegt sem þarf að huga að í svona öflugum vindi,“ segir hún við vefinn

Birta segir að veðrið verði mun skárra á höfuðborgarsvæðinu þó búast megi við snjókomu og jafnvel skafrenningi síðdegis í dag og kvöld með vaxandi vindi: \"Í fyrramálið er öflug norðanátt á höfuðborgarsvæðinu með snjókomu og skafrenningi, jafnvel upp í storminn, en þegar líður á morgundaginn dregur úr vindinum. Höfuðborgarbúar munu finna fyrir þessari lægð eins og allir aðrir á landinu.“

Á vefnum bendir hún ennfremur á að þegar lægðin færist til austurs dragi úr vindinum suðaustanlands: \"En þá er bara að gefa í hann á Vestfjörðum. Þá er að snúast í norðanstorm á vestfjörðum í kvöld og nótt með snjókomu. Þessi stormur færist svo yfir allt norðanvert landið á morgun með snjókomu. Það verður sömuleiðis hvasst eða stormur sunnantil með skafrenningi eða einhverjum éljum.“

Birta segir að veðrið verði ekki jafn slæmt í Vestmannaeyjum og útlit var fyrir í gær: \"Núna virðist lægðin ætla að halda sig aðeins austar sem þýðir að vindurinn verður aðeins norðaustanstæðari og við það falla Vestmannaeyjar í nokkuð skjól af Eyjafjöllum þannig að það er ekki sama viðbúnaðarstig í Vestmannaeyjum í dag og útlit var fyrir í gær,“ segir Birta Líf á fréttavef RÚV í morgun og bætir því við að þó megi búast við stormi þar í dag og snjókomu.