Óveðrið sem Almannavarnir ríkisins vöruðu við í gærdag er skollið á á suðvestanverðu landinu, en skilin komu yfir Suðurnes á áttunda tímanum í morgun og strax um hálf níu í morgun reið óveðrið yfir höfuðborgarsvæðið.
Skyggni er lítið í þéttbýlinu á þessum slóðum og fer versnandi. Ökumenn sem nauðsynlega þurfa að vera á ferli eru beðnir um að fara með ýtrustu gát. Lögregla, Vegageerð og björgunarsveitir eru í viðbragðsstöðu, en búast má við að færð taki að spillast á hverri stundu.
Skólahaldi hefur verið aflýst á nokkrum stöðum, svo sem á Kjalarnesi, á og við Akranes og í Borgarfirði.
Spáð er dimmri hríð undir hádegi og 18 til 23 m/s, en fljótlega upp úr því blotar á láglendi og ætla má að það lægi um kl. 14:00. Skilin fara ákveðið norðaustur yfir landið. Vestanlands og á Vestfjörðum verður veður í hámarki um hádegi og um miðjan daginn vestantil á Norðurlandi. Suðaustanlands fer hins vegar fljótt í slyddu og bleytu.
Farið er að hvessa á Suðurnesjum og komið óveður og slæmt skyggni á Reykjanesbraut og á Grindarvíkurvegi. Það er hálka eða snjóþekja á flestum vegum á Suður- og Suðvesturlandi, m.a. er hálka á stofnbrautum á Höfuðborgarsvæðinu. Hálkublettir og óveður er á Kjalarnesi. Hálka og óveður er undir Eyjafjöllum og við Vík.
Á Vesturlandi er hálka eða snjóþekja víðast hvar. Þungfært og skafrenningur er á Fróðárheiði.
Á Vestfjörðum er hálka eða snjóþekja og skafrenningur á flestum leiðum. Snjóþekja og stórhríð er á Gemlufallsheiði. Þungfært er á Kleifarheiði en þæfingsfærð og skafrenningur í Patreksfirði og á Klettsháls. Hrafnseyrarheiði og Dynjandisheiði eru ófærar einnig er ófært á Bjarnarfjarðarhálsi og þaðan norður í Árneshrepp.
Á Norður- og Austurlandi er hálka eða snjóþekja allvíða. Þæfingsfærð er á Siglufjarðarvegi en hálka og skafrenningur er á Víkurskarði. Flughálka er á Dettifossvegi. Þæfingsfærð er á Öxi og Breiðdalsheiði en hálkublettir og smá éljagangur eru með suðausturströndinni.